Biblían, Jósúabók, Kafli 24. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10211&pid=8&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jósúabók

Biblían

Fimmta Mósebók Jósúabók Dómarabókin

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24

1 Jósúa stefndi saman öllum ættkvíslum Ísraels í Síkem og kallaði fyrir sig öldunga Ísraels og höfðingja hans, dómendur hans og tilsjónarmenn, og þeir gengu fram fyrir auglit Guðs.

2 Þá mælti Jósúa við allan lýðinn: ,,Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Forfeður yðar bjuggu í fyrndinni fyrir handan Efrat, þeir Tara, faðir Abrahams og Nahors, og dýrkuðu aðra guði.

3 Þá tók ég Abraham forföður yðar handan yfir Fljótið og lét hann fara fram og aftur um allt Kanaanland, og ég margfaldaði kyn hans og gaf honum Ísak.

4 Og Ísak gaf ég þá Jakob og Esaú. Og Esaú gaf ég Seírfjöll, að hann skyldi taka þau til eignar, en Jakob og synir hans fóru suður til Egyptalands.

5 Síðan sendi ég Móse og Aron og laust Egyptaland með undrum þeim, er ég framdi þar. Síðar leiddi ég yður út þaðan.

6 Ég leiddi feður yðar út af Egyptalandi, og þér komuð að Sefhafinu. En Egyptar veittu feðrum yðar eftirför með vögnum og riddurum til hafsins.

7 Þá hrópuðu þeir til Drottins, og ég setti myrkur milli yðar og Egypta, og lét hafið falla yfir þá, svo að það huldi þá. Og þér sáuð með eigin augum, hvernig ég fór með Egypta. Eftir það dvölduð þér langa hríð í eyðimörkinni.

8 Síðan leiddi ég yður inn í land Amoríta, sem bjuggu hinumegin Jórdanar, og þeir börðust við yður, en ég gaf þá í hendur yður, og þér tókuð land þeirra til eignar, og ég eyddi þeim fyrir yður.

9 Þá reis upp Balak Sippórsson, konungur í Móab, og barðist við Ísrael. Sendi hann þá og lét kalla Bíleam Beórsson til þess að bölva yður.

10 En ég vildi ekki heyra Bíleam, og hann blessaði yður þvert á móti. Frelsaði ég yður þannig úr höndum hans.

11 Þá fóruð þér yfir Jórdan og komuð til Jeríkó. Og Jeríkóbúar börðust við yður, þeir Amorítar, Peresítar, Kanaanítar, Hetítar, Girgasítar, Hevítar og Jebúsítar, en ég gaf þá í yðar hendur.

12 Þá sendi ég skelfingu á undan yður, og stökkti Amorítakonungunum tveimur burt undan yður, en hvorki kom sverð þitt né bogi þinn þessu til leiðar.

13 Ég gaf yður land, sem þér ekkert höfðuð fyrir haft, og borgir, sem þér höfðuð ekki reist, en tókuð yður samt bólfestu í þeim, og víngarða og olíutré, sem þér hafið ekki gróðursett, en njótið nú ávaxta þeirra.

14 Óttist því Drottin og þjónið honum einlæglega og dyggilega, og kastið burt guðum þeim, er feður yðar þjónuðu fyrir handan Fljótið og í Egyptalandi, og þjónið Drottni.

15 En líki yður ekki að þjóna Drottni, kjósið þá í dag, hverjum þér viljið þjóna, hvort heldur guðum þeim, er feður yðar þjónuðu, þeir er bjuggu fyrir handan Fljótið, eða guðum Amoríta, hverra land þér nú byggið. En ég og mínir ættmenn munum þjóna Drottni.``

16 Þá svaraði lýðurinn og sagði: ,,Fjarri sé það oss að yfirgefa Drottin og þjóna öðrum guðum.

17 Því að Drottinn er vor Guð, hann sem leitt hefir oss og feður vora af Egyptalandi, úr þrælahúsinu, og gjört hefir þessi miklu undur að oss ásjáandi og varðveitt oss á allri þeirri leið, sem vér höfum nú farið, og meðal allra þeirra þjóða, þar sem vér höfum lagt um leið vora.

18 Og Drottinn stökkti burt undan oss öllum þjóðunum og Amorítum, íbúum landsins. Vér viljum einnig þjóna Drottni, því að hann er vor Guð!``

19 Jósúa sagði þá við lýðinn: ,,Þér getið ekki þjónað Drottni, því að hann er heilagur Guð. Vandlátur Guð er hann. Hann mun ekki umbera misgjörðir yðar og syndir.

20 Ef þér yfirgefið Drottin og þjónið útlendum guðum, þá mun hann snúast gegn yður og láta illt yfir yður koma og tortíma yður, í stað þess að hann áður hefir gjört vel til yðar.``

21 Þá sagði lýðurinn við Jósúa: ,,Nei, því að Drottni viljum vér þjóna.``

22 Þá sagði Jósúa við lýðinn: ,,Þér eruð vottar að því gegn sjálfum yður, að þér hafið kosið að þjóna Drottni.`` Þeir sögðu: ,,Vér erum það.``

23 Jósúa sagði: ,,Kastið nú burt útlendu guðunum, sem hjá yður eru, og hneigið hjörtu yðar til Drottins, Ísraels Guðs.``

24 Lýðurinn sagði við Jósúa: ,,Drottni Guði vorum viljum vér þjóna og hlýða hans röddu.``

25 Á þeim degi gjörði Jósúa sáttmála við lýðinn og setti honum lög og rétt þar í Síkem.

26 Og Jósúa ritaði þessi orð í lögmálsbók Guðs, tók því næst stein mikinn og reisti hann þar upp undir eikinni, sem stóð í helgidómi Drottins.

27 Og Jósúa sagði við allan lýðinn: ,,Sjá, steinn þessi skal vera vitni gegn oss, því að hann hefir heyrt öll orðin, sem Drottinn hefir við oss talað, og hann skal vera vitni gegn yður, til þess að þér afneitið ekki Guði yðar.``

28 Síðan lét Jósúa fólkið fara, hvern til síns óðals.

29 Eftir þessa atburði andaðist Jósúa Núnsson, þjónn Drottins, hundrað og tíu ára gamall,

30 og var hann grafinn í eignarlandi sínu, hjá Timnat Sera, sem liggur á Efraímfjöllum, fyrir norðan Gaasfjall.

31 Ísrael þjónaði Drottni meðan Jósúa var á lífi og öldungar þeir, er lifðu Jósúa og þekktu öll þau verk, er Drottinn hafði gjört fyrir Ísrael.Bein Jósefs, sem Ísraelsmenn höfðu haft með sér sunnan af Egyptalandi, grófu þeir í Síkem, í landspildu þeirri, sem Jakob hafði keypt af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað kesíta, og varð hún eign Jósefs sona.

32 Bein Jósefs, sem Ísraelsmenn höfðu haft með sér sunnan af Egyptalandi, grófu þeir í Síkem, í landspildu þeirri, sem Jakob hafði keypt af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað kesíta, og varð hún eign Jósefs sona.

<< ← Prev Top Next >>