Biblían, Rutarbók, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10234&pid=10&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Rutarbók

Biblían

Dómarabókin Rutarbók Fyrri Samúelsbók

Kafli 1 2 3 4

1 Naomí átti þar frænda manns síns, ríkan mann af ætt Elímeleks, og hét hann Bóas.

2 Og Rut hin móabítíska sagði við Naomí: ,,Ég ætla að fara út á akurinn og tína upp öx á eftir einhverjum þeim, er kann að sýna mér velvild.`` Naomí svaraði henni: ,,Far, þú, dóttir mín!``

3 Rut fór og tíndi á akrinum á eftir kornskurðarmönnunum, og henni vildi svo vel til, að teig þennan átti Bóas, sem var í ætt við Elímelek.

4 Og sjá, Bóas kom frá Betlehem og sagði við kornskurðarmennina: ,,Drottinn sé með yður!`` Þeir svöruðu: ,,Drottinn blessi þig!``

5 Bóas mælti við þjón sinn, sem settur var yfir kornskurðarmennina: ,,Hverjum heyrir þessi stúlka til?``

6 Þjónninn, sem settur var yfir kornskurðarmennina, svaraði og sagði: ,,Það er móabítísk stúlka, sú sem kom aftur með Naomí frá Móabslandi.

7 Hún sagði: ,Leyf mér að tína upp og safna saman meðal bundinanna á eftir kornskurðarmönnunum.` Og hún kom og hefir verið að frá því í morgun og þangað til nú og hefir ekki gefið sér neinn tíma til að hvíla sig.``

8 Þá sagði Bóas við Rut: ,,Heyr þú, dóttir mín! Far þú ekki á annan akur til þess að tína, og far þú heldur ekki héðan, en haltu þig hér hjá stúlkum mínum.

9 Gef þú gætur að þeim akri, þar sem kornskurðarmennirnir skera upp, og gakk þú á eftir þeim. Ég hefi boðið piltunum að amast ekki við þér. Og ef þig þyrstir, þá gakk að ílátunum og drekk af því, sem piltarnir ausa.``

10 Þá féll hún fram á ásjónu sína og laut niður að jörðu og sagði við hann: ,,Hvers vegna sýnir þú mér þá velvild að víkja mér góðu, þar sem ég þó er útlendingur?``

11 Bóas svaraði og sagði við hana: ,,Mér hefir verið sagt allt af því, hvernig þér hefir farist við tengdamóður þína eftir dauða manns þíns, og að þú hefir yfirgefið föður þinn og móður og ættland þitt og farið til fólks, sem þú þekktir ekki áður.

12 Drottinn umbuni verk þitt, og laun þín verði fullkomin, er þú hlýtur af Drottni, Ísraels Guði, þar sem þú ert komin að leita skjóls undir vængjum hans.``

13 Rut sagði: ,,Ó, að ég mætti finna náð í augum þínum, herra minn, því að þú hefir huggað mig og talað vinsamlega við ambátt þína, og er ég þó ekki einu sinni jafningi ambátta þinna.``

Rutarbók 2:13 - Ruth Meets Boaz
Ruth Meets Boaz
14 Er matmálstími kom, sagði Bóas við hana: ,,Kom þú hingað og et af brauðinu og dýf bita þínum í vínediksblönduna.`` Þá settist hún hjá kornskurðarmönnunum, og hann rétti henni bakað korn, og hún át sig sadda og leifði.

15 Síðan stóð hún upp og fór að tína. Þá lagði Bóas svo fyrir pilta sína: ,,Hún má einnig tína millum bundinanna, og gjörið henni ekkert mein

16 og dragið jafnvel öx út úr hnippunum handa henni og látið eftir liggja, svo að hún megi tína, og eigi skuluð þér atyrða hana.``

17 Síðan tíndi hún á akrinum allt til kvelds. Og er hún barði kornið úr því, er hún hafði tínt, þá var það hér um bil efa af byggi.

18 Hún tók það og fór inn í borgina, og sá tengdamóðir hennar, hvað hún hafði tínt. Því næst tók hún fram það, er hún hafði leift, þá er hún var södd orðin, og fékk henni.

19 Þá sagði tengdamóðir hennar við hana: ,,Hvar hefir þú tínt í dag og hvar hefir þú unnið? Blessaður sé sá, sem vikið hefir þér góðu!`` Hún sagði tengdamóður sinni frá, hjá hverjum hún hefði unnið, og mælti: ,,Maðurinn, sem ég hefi unnið hjá í dag, heitir Bóas.``

20 Þá sagði Naomí við tengdadóttur sína: ,,Blessaður sé hann af Drottni, sem hefir ekki látið af miskunn sinni við lifandi og látna.`` Og Naomí sagði við hana: ,,Maðurinn er okkur nákominn; hann er einn af lausnarmönnum okkar.``

21 Þá sagði Rut hin móabítíska: ,,Hann sagði og við mig: ,Haltu þig hjá mínum piltum, uns þeir hafa lokið öllum kornskurði hjá mér.```

22 Og Naomí sagði við Rut, tengdadóttur sína: ,,Það er gott, dóttir mín, að þú farir út með ambáttum hans. Þá munu menn eigi áreita þig á öðrum akri.``Síðan hélt hún sig hjá stúlkum Bóasar, þá er hún var að tína, uns byggskurðinum og hveitiskurðinum var lokið. Eftir það var hún kyrr hjá tengdamóður sinni.

23 Síðan hélt hún sig hjá stúlkum Bóasar, þá er hún var að tína, uns byggskurðinum og hveitiskurðinum var lokið. Eftir það var hún kyrr hjá tengdamóður sinni.

<< ← Prev Top Next → >>