Biblían, Síðari konungabók, Kafli 3. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10316&pid=14&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Síðari konungabók

Biblían

Fyrri konungabók Síðari konungabók Fyrri kroníkubók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25

1 Jóram, sonur Akabs, varð konungur í Samaríu yfir Ísrael á átjánda ríkisári Jósafats Júdakonungs og ríkti tólf ár.

2 Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins, þó ekki eins og faðir hans og móðir hans, því að hann tók burt Baalsmerkissteinana, sem faðir hans hafði gjöra látið.

3 En við syndir Jeróbóams Nebatssonar, er hann hafði komið Ísrael til að drýgja, hélt hann fast og lét ekki af þeim.

4 Mesa, konungur í Móab, átti miklar hjarðir. Greiddi hann Ísraelskonungi í skatt hundrað þúsund lömb og ull af hundrað þúsund hrútum.

5 En er Akab var dáinn, braust Móabskonungur undan Ísraelskonungi.

6 Lagði Jóram konungur þá af stað frá Samaríu og kannaði allan Ísrael.

7 Hann sendi og þegar til Jósafats Júdakonungs og lét segja honum: ,,Móabskonungur hefir brotist undan mér. Vilt þú fara með mér í hernað á móti Móabítum?`` ,,Fara mun ég,`` svaraði hann, ,,ég sem þú, mín þjóð sem þín þjóð, mínir hestar sem þínir hestar.``

8 Og hann sagði: ,,Hvaða leið eigum við að fara?`` Jóram svaraði: ,,Leiðina um Edómheiðar.``

9 Fóru þeir nú af stað, Ísraelskonungur, Júdakonungur og konungurinn í Edóm. Og er þeir höfðu farið sjö dagleiðir, hafði herinn ekkert vatn og ekki heldur skepnurnar, sem þeir höfðu með sér.

10 Þá sagði Ísraelskonungur: ,,Æ, Drottinn hefir kallað þessa þrjá konunga til þess að selja þá í hendur Móabítum.``

11 En Jósafat mælti: ,,Er hér enginn spámaður Drottins, að vér getum látið hann ganga til frétta við Drottin?`` Þá svaraði einn af þjónum Ísraelskonungs og sagði: ,,Hér er Elísa Safatsson, sem hellt hefir vatni á hendur Elía.``

12 Jósafat sagði: ,,Hjá honum er orð Drottins!`` Síðan gengu þeir Ísraelskonungur, Jósafat og konungurinn í Edóm ofan til hans.

13 En Elísa sagði við Ísraelskonung: ,,Hvað á ég saman við þig að sælda? Gakk þú til spámanna föður þíns og til spámanna móður þinnar.`` Ísraelskonungur svaraði honum: ,,Nei, því að Drottinn hefir kallað þessa þrjá konunga til þess að selja þá í hendur Móabítum.``

14 Þá mælti Elísa: ,,Svo sannarlega sem Drottinn allsherjar lifir, sá er ég þjóna: Væri það ekki vegna Jósafats Júdakonungs, þá skyldi ég ekki renna til þín auga né virða þig viðlits.

15 En sækið þér nú hörpuleikara.`` Í hvert sinn sem hörpuleikarinn sló hörpuna, hreif hönd Drottins Elísa.

16 Og hann mælti: ,,Svo segir Drottinn: Gjörið gryfju við gryfju í dal þessum,

17 því að svo segir Drottinn: Þér munuð hvorki sjá vind né regn, og þó mun þessi dalur fyllast vatni, svo að þér megið drekka, svo og her yðar og skepnur.

18 En Drottni þykir þetta of lítið, hann mun og gefa Móabíta í hendur yðar.

19 Og þér munuð vinna allar víggirtar borgir og allar úrvalsborgir, fella öll aldintré og stemma allar vatnslindir, og öllum góðum ökrum munuð þér spilla með grjóti.``

20 Morguninn eftir, í það mund er matfórnin er fram borin, kom allt í einu vatn úr áttinni frá Edóm, svo að landið fylltist vatni.

21 En er allir Móabítar heyrðu, að konungarnir væru komnir til þess að herja á þá, var öllum boðið út, er vopnum máttu valda, og námu þeir staðar á landamærunum.

22 En er þeir risu um morguninn og sólin skein á vatnið, sýndist Móabítum álengdar vatnið vera rautt sem blóð.

23 Þá sögðu þeir: ,,Þetta er blóð! Konungunum hlýtur að hafa lent saman og þeir hafa unnið hvor á öðrum, og nú er að hirða herfangið, Móabítar!``

24 En er þeir komu að herbúðum Ísraels, þustu Ísraelsmenn út og börðu á Móabítum, svo að þeir flýðu fyrir þeim. Síðan brutust þeir inn í landið og unnu nýjan sigur á Móabítum.

25 En borgirnar brutu þeir niður, og á alla góða akra vörpuðu þeir sínum steininum hver og fylltu þá grjóti, og allar vatnslindir stemmdu þeir og öll aldintré felldu þeir, uns eigi var annað eftir en steinmúrarnir í Kír Hareset. Umkringdu slöngvumennirnir hana og köstuðu á hana.

26 En er Móabskonungur sá, að hann mundi fara halloka í orustunni, tók hann með sér sjö hundruð manna, er sverð báru, til þess að brjótast út þar sem Edómkonungur var fyrir, en þeir gátu það ekki.Þá tók hann frumgetinn son sinn, er taka átti ríki eftir hann, og fórnaði honum í brennifórn á múrnum. Kom þá mikil hryggð yfir Ísrael, og héldu þeir burt þaðan og hurfu aftur heim í land sitt.

27 Þá tók hann frumgetinn son sinn, er taka átti ríki eftir hann, og fórnaði honum í brennifórn á múrnum. Kom þá mikil hryggð yfir Ísrael, og héldu þeir burt þaðan og hurfu aftur heim í land sitt.

<< ← Prev Top Next → >>