Biblían, Síðari konungabók, Kafli 14. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10327&pid=14&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Síðari konungabók

Biblían

Fyrri konungabók Síðari konungabók Fyrri kroníkubók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25

1 Á öðru ríkisári Jóasar Jóahassonar Ísraelskonungs varð Amasía Jóasson konungur í Júda.

2 Hann var tuttugu og fimm ára að aldri, þá er hann varð konungur, og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Jóaddan og var frá Jerúsalem.

3 Hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins, þó eigi eins og Davíð forfaðir hans. Hann breytti í alla staði eins og Jóas faðir hans hafði breytt.

4 Aðeins voru fórnarhæðirnar ekki afnumdar. Enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum.

5 En er Amasía var orðinn fastur í sessi, lét hann drepa þá menn sína, er drepið höfðu konunginn föður hans.

6 En börn morðingjanna lét hann ekki af lífi taka, samkvæmt því, sem skrifað er í lögmálsbók Móse, þar sem Drottinn mælir svo fyrir: ,Feður skulu ekki líflátnir verða ásamt börnunum, og börn skulu ekki líflátin verða ásamt feðrunum, heldur skal hver líflátinn verða fyrir sína eigin synd.`

7 Það var hann, sem vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tíu þúsundum manns, og tók Sela herskildi og nefndi hana Jokteel, og heitir hún svo enn í dag.

8 Þá gjörði Amasía sendimenn á fund Jóasar Jóahassonar, Jehúsonar Ísraelskonungs með svolátandi orðsending: ,,Nú skulum við reyna með okkur.``

9 Þá sendi Jóas Ísraelskonungur Amasía Júdakonungi þau andsvör: ,,Þistillinn á Líbanon gjörði sedrustrénu á Líbanon svolátandi orðsending: ,Gef þú syni mínum dóttur þína að konu.` En villidýrin á Líbanon gengu yfir þistilinn og tróðu hann sundur.

10 Af því að þú vannst mikinn sigur á Edómítum, hefir þú fyllst ofmetnaði. Njót þú frægðarinnar og sit kyrr heima. Hví vilt þú egna ógæfuna sjálfum þér og Júda til falls?``

11 En Amasía gaf þessu engan gaum. Þá fór Jóas Ísraelskonungur af stað, og varð fundur þeirra, hans og Amasía Júdakonungs, í Bet Semes, er tilheyrir Júda.

12 Beið Júda þar ósigur fyrir Ísrael, og flýðu þeir hver til síns heima.

13 En Jóas Ísraelskonungur tók höndum Amasía Júdakonung, son Jóasar Ahasíasonar, í Bet Semes og fór með hann til Jerúsalem. Hann braut niður múra Jerúsalem frá Efraímhliði allt að hornhliðinu, fjögur hundruð álnir.

14 Því næst tók hann allt gull og silfur og öll áhöld, er fundust í musteri Drottins og í fjárhirslum konungshallarinnar, svo og gísla, og sneri síðan aftur heim til Samaríu.

15 Það sem meira er að segja um Jóas, það sem hann gjörði og hreystiverk hans og hversu hann barðist við Amasía Júdakonung, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.

16 Og Jóas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu hjá Ísraelskonungum. Og Jeróbóam sonur hans tók ríki eftir hann.

17 En Amasía Jóasson Júdakonungur lifði fimmtán ár eftir dauða Jóasar Jóahassonar Ísraelskonungs.

18 En það sem meira er að segja um Amasía, það er ritað í Árbókum Júdakonunga.

19 Og menn gjörðu samsæri gegn Amasía í Jerúsalem. Flýði hann þá til Lakís. En þeir sendu á eftir honum til Lakís og létu drepa hann þar.

20 Fluttu þeir hann síðan á hestum, og var hann grafinn í Jerúsalem hjá feðrum sínum í Davíðsborg.

21 Þá tók allur Júdalýður Asaría, þótt hann væri eigi nema sextán vetra gamall, og gjörði hann að konungi í stað Amasía föður hans.

22 Hann víggirti Elat og vann hana aftur undir Júda, eftir að konungurinn var lagstur til hvíldar hjá feðrum sínum.

23 Á fimmtánda ríkisári Amasía Jóassonar Júdakonungs varð Jeróbóam, sonur Jóasar Ísraelskonungs, konungur í Samaríu og ríkti fjörutíu og eitt ár.

24 Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins. Lét hann eigi af neinum syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.

25 Hann vann aftur Ísraelsland, þaðan frá, er leið liggur til Hamat, allt að vatninu á sléttlendinu, samkvæmt orði Drottins, Ísraels Guðs, því er hann hafði talað fyrir munn þjóns síns, Jónasar spámanns Amíttaísonar frá Gat Hefer.

26 Drottinn hafði séð, að eymd Ísraels var mjög beisk. Þrælar og frelsingjar voru horfnir, og enginn var sá, er hjálpaði Ísrael.

27 En þó hafði Drottinn ekki sagt, að hann mundi afmá nafn Ísraels af jörðinni, enda frelsaði hann þá fyrir Jeróbóam Jóasson.

28 Það sem meira er að segja um Jeróbóam og allt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, hversu hann herjaði og hversu hann vann aftur Damaskus og Hamat, er fyrrum tilheyrði Júda, undir Ísrael, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.Og Jeróbóam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu hjá Ísraelskonungum. Og Sakaría sonur hans tók ríki eftir hann.

29 Og Jeróbóam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu hjá Ísraelskonungum. Og Sakaría sonur hans tók ríki eftir hann.

<< ← Prev Top Next → >>