Biblían, Esrabók, Kafli 8. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10411&pid=17&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Esrabók

Biblían

Síðari kroníkubók Esrabók Nehemíabók

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

1 Þessir eru ætthöfðingjar þeirra _ og þetta er ættarskrá þeirra _ er fóru með mér heim frá Babýlon, þá er Artahsasta konungur sat að völdum:

2 Af niðjum Pínehasar: Gersóm. Af niðjum Ítamars: Daníel. Af niðjum Davíðs: Hattús,

3 sonur Sekanja. Af niðjum Parós: Sakaría og með honum skráðir af karlmönnum 150.

4 Af niðjum Pahat-Móabs: Eljehóenaí Serajason og með honum 200 karlmenn.

5 Af niðjum Sattú: Sekanja Jahasíelsson og með honum 300 karlmenn.

6 Af niðjum Adíns: Ebed Jónatansson og með honum fimm tugir karlmanna.

7 Af niðjum Elams: Jesaja Ataljason og með honum sjö tugir karlmanna.

8 Af niðjum Sefatja: Sebadía Míkaelsson og með honum átta tugir karlmanna.

9 Af niðjum Jóabs: Óbadía Jehíelsson og með honum 218 karlmenn.

10 Af niðjum Baní: Selómít Jósifjason og með honum 160 karlmenn.

11 Af niðjum Bebaí: Sakaría Bebaíson og með honum 28 karlmenn.

12 Af niðjum Asgads: Jóhanan Hakkatansson og með honum 110 karlmenn.

13 Af niðjum Adóníkams, síðkomnir, og þessi voru nöfn þeirra: Elífelet, Jeíel og Semaja, og með þeim 60 karlmenn.

14 Af niðjum Bigvaí: Útaí og Sabbúd og með þeim 70 karlmenn.

15 Ég safnaði þeim saman við fljótið, sem rennur um Ahava, og lágum vér þar í tjöldum í þrjá daga. En er ég hugði að fólkinu og prestunum, þá fann ég þar engan af niðjum Leví.

16 Þá sendi ég eftir Elíeser, Aríel, Semaja, Elnatan, Jaríb, Elnatan, Natan, Sakaría og Mesúllam, ætthöfðingjum, og Jójaríb og Elnatan, kennurum,

17 og bauð þeim að fara til Íddós, höfðingja í Kasifjabyggð, og lagði þeim orð í munn, er þeir skyldu flytja Íddó, bræðrum hans og musterisþjónunum í Kasifjabyggð, til þess að þeir mættu útvega oss þjónustumenn í musteri Guðs vors.

18 Og með því að hönd Guðs vors hvíldi náðarsamlega yfir oss, þá færðu þeir oss vel kunnandi mann af niðjum Mahelí Levísonar, Ísraelssonar, og Serebja og sonu hans og bræður _ átján alls,

19 og Hasabja og með honum Jesaja af niðjum Merarí, bræður hans og sonu þeirra _ tuttugu alls,

20 og af musterisþjónunum, sem Davíð og höfðingjar hans höfðu sett til að þjóna levítunum: tvö hundruð og tuttugu musterisþjóna. Þeir voru allir nefndir með nafni.

21 Og ég lét boða þar föstu við fljótið Ahava, til þess að vér skyldum auðmýkja oss fyrir Guði vorum til að biðja hann um farsællega ferð fyrir oss, börn vor og allar eigur vorar.

22 Því að ég fyrirvarð mig að biðja konung um herlið og riddara til verndar fyrir óvinum á leiðinni. Því að vér höfum sagt konungi: ,,Hönd Guðs vors hvílir yfir öllum þeim, sem leita hans, þeim til góðs, en máttur hans og reiði yfir öllum þeim, sem yfirgefa hann.``

23 Vér föstuðum því og báðum Guð um þetta, og hann bænheyrði oss.

24 Síðan valdi ég tólf úr af prestahöfðingjunum og Serebja, Hasabja og með þeim tíu af bræðrum þeirra,

25 og vó þeim út silfrið og gullið og áhöldin _ gjöfina til húss Guðs vors, er konungur og ráðgjafar hans og höfðingjar hans og allir Ísraelsmenn, þeir er þar voru, höfðu gefið.

26 Og þannig vó ég í hendur þeirra sex hundruð og fimmtíu talentur í silfri, hundrað talentur í silfuráhöldum, hundrað talentur í gulli.

27 Auk þess tuttugu gullkönnur, þúsund daríka virði, og tvö ker af gullgljáum góðum eiri, dýrmæt sem gull.

28 Og ég sagði við þá: ,,Þér eruð helgaðir Drottni, og áhöldin eru heilög, og silfrið og gullið eru sjálfviljagjöf til Drottins, Guðs feðra yðar.

29 Gætið því þessa og varðveitið það, þar til er þér vegið það aftur út í augsýn prestahöfðingjanna og levítanna og ætthöfðingja Ísraels í Jerúsalem í herbergi musteris Drottins.``

30 Síðan tóku prestarnir og levítarnir við silfrinu og gullinu og áhöldunum eftir vigt til þess að flytja það til Jerúsalem, til musteris Guðs vors.

31 Því næst lögðum vér upp frá fljótinu Ahava hinn tólfta dag hins fyrsta mánaðar og héldum til Jerúsalem, og hönd Guðs vors hvíldi yfir oss, svo að hann frelsaði oss undan valdi óvina og stigamanna.

32 Og vér komum til Jerúsalem og dvöldumst þar í þrjá daga.

33 En á fjórða degi var silfrið og gullið og áhöldin vegin út í musteri Guðs vors í hendur Meremóts prests Úríasonar, _ og með honum var Eleasar Pínehasson, og með þeim voru levítarnir Jósabad Jesúason og Nóadja Binnúíson _

34 allt saman með tölu og vigt. Og öll vigtin var þá skrifuð upp.

35 Þeir er heim komu úr herleiðingunni, þeir hernumdu, er aftur sneru, færðu Ísraels Guði brennifórnir: tólf naut fyrir allan Ísrael, níutíu og sex hrúta, sjötíu og sjö lömb, tólf hafra í syndafórn _ allt sem brennifórn Drottni til handa.Og þeir fengu jörlum konungs og landstjórunum í héraðinu hinumegin Fljóts konungsboðin, og þeir aðstoðuðu lýðinn og musteri Guðs.

36 Og þeir fengu jörlum konungs og landstjórunum í héraðinu hinumegin Fljóts konungsboðin, og þeir aðstoðuðu lýðinn og musteri Guðs.

<< ← Prev Top Next → >>