Biblían, Jobsbók, Kafli 2. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10438&pid=20&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Jobsbók

Biblían

Esterarbók Jobsbók Sálmarnir

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42

1 Nú bar svo til einn dag, að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottin, og kom Satan og meðal þeirra.

2 Mælti þá Drottinn til Satans: ,,Hvaðan kemur þú?`` Og Satan svaraði Drottni og sagði: ,,Ég hefi verið að reika um jörðina og arka fram og aftur um hana.``

3 Og Drottinn mælti til Satans: ,,Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar. Og enn þá er hann staðfastur í ráðvendni sinni, og þó hefir þú egnt mig gegn honum til að vinna honum tjón án saka.``

4 Og Satan svaraði Drottni og sagði: ,,Nær er skinnið en skyrtan, og fyrir líf sitt gefur maðurinn allt sem hann á.

5 En rétt þú út hönd þína og snert þú bein hans og hold, og þá mun hann formæla þér upp í opið geðið.``

6 Þá mælti Drottinn til Satans: ,,Sjá, veri hann á þínu valdi, en þyrma skalt þú lífi hans.``

7 Þá gekk Satan burt frá augliti Drottins og sló Job illkynjuðum kaunum frá hvirfli til ilja.

8 Og Job tók sér leirbrot til að skafa sig með, þar sem hann sat í öskunni.

9 Þá sagði kona hans við hann: ,,Heldur þú enn fast við ráðvendni þína? Formæltu Guði og farðu að deyja!``

10 En hann sagði við hana: ,,Þú talar svo sem heimskar konur tala. Fyrst vér höfum þegið hið góða af Guði, ættum vér þá ekki einnig að taka hinu vonda?`` Í öllu þessu syndgaði Job ekki með vörum sínum.

11 Þegar vinir Jobs þrír fréttu, að öll þessi ógæfa væri yfir hann komin, þá komu þeir hver frá sínum stað, þeir Elífas Temaníti, Bildad Súíti og Sófar Naamíti, og töluðu sig saman um að fara og votta honum samhryggð sína og hugga hann.

12 En er þeir hófu upp augu sín álengdar, þekktu þeir hann ekki. Tóku þeir þá að gráta hástöfum, rifu skikkjur sínar og jusu mold yfir höfuð sér hátt í loft upp.Og þannig sátu þeir hjá honum á jörðu sjö daga og sjö nætur, og enginn þeirra yrti á hann, því að þeir sáu, hversu mikil kvöl hans var.

13 Og þannig sátu þeir hjá honum á jörðu sjö daga og sjö nætur, og enginn þeirra yrti á hann, því að þeir sáu, hversu mikil kvöl hans var.

<< ← Prev Top Next → >>