Biblían, Ljóðaljóðin, Kafli 6. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10677&pid=24&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Ljóðaljóðin

Biblían

Prédikarinn Ljóðaljóðin Jesaja

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8

1 Hvert er unnusti þinn genginn, þú hin fegursta meðal kvenna? Hvert hefir unnusti þinn farið, að vér megum leita hans með þér?

2 Unnusti minn gekk ofan í garð sinn, að balsambeðunum, til þess að skemmta sér í görðunum og til að tína liljur.

3 Ég heyri unnusta mínum, og unnusti minn heyrir mér, hann sem skemmtir sér meðal liljanna.

4 Fögur ertu, vina mín, eins og Tirsa, yndisleg eins og Jerúsalem, ægileg sem herflokkar.

5 Snú frá mér augum þínum, því að þau hræða mig. Hár þitt er eins og geitahjörð, sem rennur niður Gíleaðfjall.

6 Tennur þínar eru eins og hópur af ám, sem koma af sundi, sem allar eru tvílembdar og engin lamblaus meðal þeirra.

7 Vangi þinn er eins og kinn á granatepli út um skýluraufina.

8 Sextíu eru drottningarnar og áttatíu hjákonurnar og óteljandi ungfrúr.

9 En ein er dúfan mín, ljúfan mín, einkabarn móður sinnar, augasteinn þeirrar er ól hana. Meyjarnar sáu hana og sögðu hana sæla, og drottningar og hjákonur víðfrægðu hana.

10 Hver er sú sem horfir niður eins og morgunroðinn, fögur sem máninn, hrein sem sólin, ægileg sem herflokkar?

11 Ég hafði gengið ofan í hnotgarðinn til þess að skoða gróðurinn í dalnum, til þess að skoða, hvort vínviðurinn væri farinn að bruma, hvort granateplatrén væru farin að blómgast.

12 Áður en ég vissi af, hafði löngun mín leitt mig að vögnum manna höfðingja nokkurs.Snú þér við, snú þér við, Súlamít, snú þér við, snú þér við, svo að vér fáum séð þig! Hvað viljið þér sjá á Súlamít? Er það dansinn í tvíflokknum?

13 Snú þér við, snú þér við, Súlamít, snú þér við, snú þér við, svo að vér fáum séð þig! Hvað viljið þér sjá á Súlamít? Er það dansinn í tvíflokknum?

<< ← Prev Top Next → >>