Biblían, Esekíel, Kafli 25. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10827&pid=28&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Esekíel

Biblían

Harmljóðin Esekíel Daníel

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48

1 Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

2 ,,Mannsson, snú þér að Ammónítum og spá gegn þeim

3 og seg við Ammóníta: Heyrið orð Drottins Guðs! Svo segir Drottinn Guð: Af því að þú hlakkaðir yfir því, að helgidómur minn var vanhelgaður og yfir því að Ísraelsland var í eyði lagt og yfir því að Júdamenn urðu að fara í útlegð,

4 sjá, fyrir því gef ég þig austurbyggjum til eignar, að þeir setji tjöld sín í þér og reisi búðir sínar í þér. Þeir munu eta ávöxtu þína og þeir munu drekka mjólk þína.

5 Og ég vil gjöra Rabba að beitilandi fyrir úlfalda og land Ammóníta að fjárbóli, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn.

6 Því að svo segir Drottinn Guð: Af því að þú klappaðir lof í lófa og stappaðir með fætinum og fagnaðir með fullri fyrirlitning í hjarta yfir Ísraelslandi,

7 sjá, fyrir því rétti ég út hönd mína í móti þér og læt þig verða heiðingjum að herfangi og afmái þig úr tölu þjóðanna og týni þér úr tölu landanna. Ég vil tortíma þér, til þess að þú viðurkennir, að ég er Drottinn.

8 Svo segir Drottinn Guð: Af því að Móab segir: Sjá, Júdalýður er eins og allar aðrar þjóðir!

9 Sjá, fyrir því opna ég hlíðar Móabs, til þess að landið verði borgalaust, missi borgir sínar allt til hinnar ystu: prýði landsins, Bet Jesímót, Baal Meon og Kirjataím.

10 Austurbyggjum gef ég það til eignar, í viðbót við land Ammóníta, til þess að Ammóníta verði eigi framar minnst meðal þjóðanna.

11 Og ég mun framkvæma refsidóma á Móab, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn.

12 Svo segir Drottinn Guð: Af því að Edóm hefir breytt við Júdamenn af mikilli hefndargirni og misgjört stórlega með því að hefna sín á þeim,

13 fyrir því segir Drottinn Guð svo: Ég vil rétta út hönd mína gegn Edóm og eyða þar mönnum og fénaði og gjöra landið að auðn. Frá Teman allt til Dedan skulu þeir fyrir sverði falla.

14 Og ég fel lýð mínum Ísrael að framkvæma hefnd mína á Edóm, svo að þeir fari með Edóm samkvæmt reiði minni og heift, og hann fái að kenna á hefnd minni, _ segir Drottinn Guð.

15 Svo segir Drottinn Guð: Af því að Filistar sýndu af sér hefnigirni og hefndu sín með fyrirlitning í hjarta, hyggjandi á tortíming með ævarandi fjandskap,

16 fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég mun rétta út hönd mína gegn Filistum og útrýma Kretum og eyða þeim, sem eftir eru á sjávarströndinni.Og ég mun koma miklum hefndum fram á þeim með grimmilegum hirtingum, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn, þá er ég læt hefnd mína koma fram á þeim.``

17 Og ég mun koma miklum hefndum fram á þeim með grimmilegum hirtingum, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn, þá er ég læt hefnd mína koma fram á þeim.``

<< ← Prev Top Next → >>