Biblían, Esekíel, Kafli 40. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10842&pid=28&tid=1&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Gamla Testamentið / Esekíel

Biblían

Harmljóðin Esekíel Daníel

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48

1 Á tuttugasta og fimmta ári eftir að vér vorum herleiddir, í byrjun ársins, tíunda dag mánaðarins, fjórtán árum eftir að borgin var tekin, einmitt þann dag kom hönd Drottins yfir mig og flutti mig þangað.

2 Í guðlegri sýn flutti hann mig til Ísraelslands og setti mig niður á mjög hátt fjall, og á því var gagnvart mér sem endurreist borg.

3 Er hann hafði flutt mig þangað, birtist maður nokkur, og var hann ásýndum sem af eiri væri. Hann hélt á línstreng og mælistöng og stóð við hliðið.

4 Og maðurinn sagði við mig: ,,Mannsson, lít á með augum þínum, hlýð á með eyrum þínum og hugfest þér allt, er ég sýni þér, því að þú ert til þess hingað fluttur, að þér verði sýnt þetta. Kunngjör þú Ísraelslýð allt það, sem þú sér.``

5 Sjá, múrveggur lá utan um musterið hringinn í kring, og maðurinn hélt á mælistöng í hendinni. Hún var sex álna löng, alinin talin þverhönd lengri en almenn alin. Og hann mældi þykkt múrsins, og var hún ein mælistöng, og hæðin var ein mælistöng.

6 Því næst gekk hann inn í hliðið, er vissi til austurs. Gekk hann upp tröppurnar, sem lágu upp að því, og mældi þröskuld hliðsins, og var hann ein mælistöng á breidd.

7 Hvert varðherbergi ein mælistöng á lengd og ein mælistöng á breidd og súlan milli varðherbergjanna fimm álnir, og þröskuldur hliðsins innan við forsal hliðsins ein mælistöng.

8 Og hann mældi forsal hliðsins,

9 og var hann átta álnir og súlur tvær álnir, en forsalur hliðsins vissi að musterinu.

10 Varðherbergin í hliðinu voru hvert gegnt öðru, sín þrjú hvorumegin, öll þrjú voru þau jöfn að máli. Súlurnar beggja vegna voru og jafnar að máli.

11 Þá mældi maðurinn dyravídd hliðsins, og var hún tíu álnir, en lengd hliðsins þrettán álnir.

12 Fyrir framan varðherbergin voru grindur, ein alin hvorumegin, en hvert varðherbergi var sex álnir á hvorn veg.

13 Og hann mældi hliðið frá þaki eins varðherbergis yfir á þak annars, og var breiddin tuttugu og fimm álnir. Dyrnar stóðust á beggja vegna.

14 . . .

15 Og frá framhlið ytra hliðsins inn að framhliðinni á forsal innra hliðsins voru fimmtíu álnir.

16 Hringinn í kring á hliðhúsinu voru gluggar, sem lágu inn í varðherbergin í gegnum súlurnar og smávíkkuðu inn á við, og sömuleiðis voru gluggar á forsalnum allt um kring inn á við, og á súlunum voru höggnir pálmar.

17 Nú leiddi hann mig inn í ytri forgarðinn. Þar voru herbergi, og steinlagt gólf var í forgarðinum allt um kring. Þrjátíu herbergi lágu við steingólfið.

18 Steingólfið var fram með hliðarvegg hliðanna, jafnlangt lengd hliðanna. Það var lægra steingólfið.

19 Og hann mældi breidd forgarðsins frá innri framhlið neðra hliðsins að úthlið innri forgarðsins, og voru það hundrað álnir.

20 Hliðið á ytri forgarðinum, er vissi í norðurátt, lengd og breidd þess mældi hann einnig.

21 Og í því voru þrjú varðherbergi hvorumegin, og súlur þess og forsalur voru jöfn að máli við fyrsta hliðið, lengd þess var fimmtíu álnir og breiddin tuttugu og fimm álnir.

22 Og gluggar þess, forsalur og pálmar voru jafnir að máli við það, sem var í hliðinu, er vissi í austurátt. Var gengið upp að því um sjö þrep, og forsalur þess lá innan til.

23 Og hlið inn að innri forgarðinum var gegnt norðurhliðinu, eins og við austurhliðið, og hann mældi hundrað álnir frá einu hliðinu til annars.

24 Því næst lét hann mig ganga í suðurátt. Þar var hlið, sem vissi í suðurátt. Og hann mældi súlur þess og forsal, og voru þau jöfn hinum að máli.

25 Á því voru gluggar, svo og á forsal þess, hringinn í kring, eins og hinir gluggarnir voru. Lengd þess var fimmtíu álnir og breiddin tuttugu og fimm álnir.

26 Var gengið upp að því um sjö þrep, og forsalur þess lá innan til, og voru pálmar á honum, hvor sínum megin, á súlum hans.

27 Og hlið var á innri forgarðinum, er vissi í suður, og hann mældi hundrað álnir frá einu hliðinu til annars í suðurátt.

28 Þessu næst leiddi hann mig um suðurhliðið inn í innri forgarðinn og mældi suðurhliðið, var það jafnt hinum fyrri að máli,

29 -

30 sömuleiðis varðherbergi þess, súlur og forsal, og voru þau jöfn hinum fyrri að máli. Á því voru gluggar, svo og á forsal þess, hringinn í kring. Lengd þess var fimmtíu álnir og breiddin tuttugu og fimm álnir.

31 Og forsalur þess lá út að ytri forgarðinum, og pálmar voru á súlum þess, og voru þar átta þrep upp að ganga.

32 Hann leiddi mig inn í innri forgarðinn að hliðinu, sem vissi í austurátt, og mældi hliðið. Var það að máli jafnt hinum.

33 Og varðherbergi þess, súlur og forsalur voru jöfn að máli hinum fyrri, og á því voru gluggar, svo og á forsal þess, hringinn í kring. Það var fimmtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm álnir á breidd.

34 Og forsalur þess lá út að ytri forgarðinum, og pálmar voru á súlum þess beggja vegna. Voru þar átta þrep upp að ganga.

35 -

36 Hann leiddi mig nú að norðurhliðinu og mældi varðherbergi þess, súlur og forsal. Var það jafnt að máli hinum fyrri. Á því voru gluggar hringinn í kring. Það var fimmtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm álnir á breidd.

37 Og forsalur þess lá út að ytri forgarðinum, og pálmar voru á súlum þess beggja vegna. Voru þar átta þrep upp að ganga.

38 Þar var herbergi, og var gengið í það úr forsal hliðsins. Þar var brennifórnin þvegin.

39 Og í forsal hliðsins stóðu tvö borð annars vegar og önnur tvö borð hins vegar til þess að slátra á þeim brennifórninni, syndafórninni og sektarfórninni.

40 Og að utanverðu, við hliðarvegginn á forsal norðurhliðsins, voru tvö borð, og við hinn hliðarvegginn á forsal hliðsins voru önnur tvö borð;

41 fjögur borð öðrum megin og fjögur borð hinumegin við hliðarvegg hliðsins, alls átta borð, sem menn slátruðu á.

42 Voru fjögur borð til brennifórnar af höggnum steinum. Þau voru hálfrar annarrar álnar löng, hálfrar annarrar álnar breið og álnar há. Á þau skyldi leggja áhöldin, sem höfð voru, þá er brennifórnum og sláturfórnum var slátrað.

43 Umhverfis borðin var þverhandarhá rönd, og skyldi fórnarkjötið lagt á borðin, og yfir borðunum voru þök til þess að skýla þeim fyrir regni og hita.

44 Hann leiddi mig inn í innri forgarðinn, og sjá, þar voru tvö herbergi í innri forgarðinum, annað við hliðarvegg norðurhliðsins, og vissi framhlið þess í suðurátt; hitt við hliðarvegg suðurhliðsins, og vissi framhlið þess í norðurátt.

45 Og hann sagði við mig: ,,Þetta herbergi, sem snýr framhlið sinni í suður, er ætlað prestunum, sem gegna þjónustu í musterinu.

46 En herbergið, sem snýr framhlið sinni í norður, er ætlað prestunum, sem gegna þjónustu við altarið. Þeir eru niðjar Sadóks, þeir einir af Levísonum mega nálgast Drottin til þess að þjóna honum.``

47 Hann mældi forgarðinn. Hann var hundrað álnir á lengd og hundrað álnir á breidd, réttur ferhyrningur, og altarið stóð fyrir framan sjálft musterið.

48 Því næst leiddi hann mig að forsal musterisins og mældi súlur forsalarins, fimm álnir hvorumegin, og breidd dyranna var fjórtán álnir og dyraumbúnaðurinn þrjár álnir hvorumegin.Forsalurinn var tuttugu álnir á lengd og tólf álnir á breidd, og var um tíu þrep upp að ganga að honum. En við dyrastafina voru súlur, ein hvorumegin.

49 Forsalurinn var tuttugu álnir á lengd og tólf álnir á breidd, og var um tíu þrep upp að ganga að honum. En við dyrastafina voru súlur, ein hvorumegin.

<< ← Prev Top Next → >>