Biblían, Jóhannesarguðspjall, Kafli 1. is available here: https://www.bible.promo/chapters.php?id=10998&pid=45&tid=2&bid=41
Holy Bible project logo icon
FREE OFF-line Bible for Android Get Bible on Google Play QR Code Android Bible

Holy Bible
for Android

is a powerful Bible Reader which has possibility to download different versions of Bible to your Android device.

Bible Verses
for Android

Bible verses includes the best bible quotes in more than 35 languages

Pear Bible KJV
for Android

is an amazing mobile version of King James Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible BBE
for Android

is an amazing mobile version of Bible in Basic English that will help you to read this excellent book in any place you want.

Pear Bible ASV
for Android

is an amazing mobile version of American Standard Version Bible that will help you to read this excellent book in any place you want.

BIBLE VERSIONS / Biblían / Nýja Testamentið / Jóhannesarguðspjall

Biblían

Lúkasarguðspjall Jóhannesarguðspjall Postulasagan

Kafli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

1 Í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð.

2 Hann var í upphafi hjá Guði.

3 Allir hlutir urðu fyrir hann, án hans varð ekki neitt, sem til er.

4 Í honum var líf, og lífið var ljós mannanna.

5 Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki á móti því.

6 Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes.

7 Hann kom til vitnisburðar, til að vitna um ljósið, svo að allir skyldu trúa fyrir hann.

8 Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið.

9 Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn.

10 Hann var í heiminum, og heimurinn var orðinn til fyrir hann, en heimurinn þekkti hann ekki.

11 Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum.

12 En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans.

13 Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir.

14 Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum.

15 Jóhannes vitnar um hann og hrópar: ,,Þetta er sá sem ég átti við, þegar ég sagði: Sá sem kemur eftir mig, var á undan mér, enda fyrri en ég.``

16 Af gnægð hans höfum vér allir þegið, náð á náð ofan.

17 Lögmálið var gefið fyrir Móse, en náðin og sannleikurinn kom fyrir Jesú Krist.

18 Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt hann.

19 Þessi er vitnisburður Jóhannesar, þegar Gyðingar sendu til hans presta og levíta frá Jerúsalem að spyrja hann: ,,Hver ert þú?``

20 Hann svaraði ótvírætt og játaði: ,,Ekki er ég Kristur.``

21 Þeir spurðu hann: ,,Hvað þá? Ertu Elía?`` Hann svarar: ,,Ekki er ég hann.`` ,,Ertu spámaðurinn?`` Hann kvað nei við.

22 Þá sögðu þeir við hann: ,,Hver ertu? Vér verðum að svara þeim, er sendu oss. Hvað segir þú um sjálfan þig?``

23 Hann sagði: ,,Ég er rödd hrópanda í eyðimörk: Gjörið beinan veg Drottins, eins og Jesaja spámaður segir.``

24 Sendir voru menn af flokki farísea.

25 Þeir spurðu hann: ,,Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?``

26 Jóhannes svaraði: ,,Ég skíri með vatni. Mitt á meðal yðar stendur sá, sem þér þekkið ekki,

27 hann, sem kemur eftir mig, og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa.``

28 Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra.

29 Daginn eftir sér hann Jesú koma til sín og segir: ,,Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins.

30 Þar er sá er ég sagði um: ,Eftir mig kemur maður, sem var á undan mér, því hann er fyrri en ég.`

31 Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni, að hann opinberist Ísrael.``

32 Og Jóhannes vitnaði: ,,Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu, og hann nam staðar yfir honum.

33 Sjálfur þekkti ég hann ekki, en sá er sendi mig að skíra með vatni, sagði mér: ,Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda.`

34 Þetta sá ég, og ég vitna, að hann er sonur Guðs.``

35 Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans.

36 Hann sér Jesú á gangi og segir: ,,Sjá, Guðs lamb.``

Jóhannesarguðspjall 1:36 - John Calls Jesus the Lamb of God
John Calls Jesus the Lamb of God
37 Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á eftir Jesú.

38 Jesús sneri sér við, sá þá koma á eftir sér og sagði við þá: ,,Hvers leitið þið?`` Þeir svara: ,,Rabbí (það þýðir meistari), hvar dvelst þú?``

39 Hann segir: ,,Komið og sjáið.`` Þeir komu og sáu, hvar hann dvaldist, og voru hjá honum þann dag. Þetta var síðdegis.

40 Annar þessara tveggja, sem heyrðu orð Jóhannesar og fóru á eftir Jesú, var Andrés, bróðir Símonar Péturs.

41 Hann finnur fyrst bróður sinn, Símon, og segir við hann: ,,Við höfum fundið Messías!`` (Messías þýðir Kristur, Hinn smurði.)

42 Hann fór með hann til Jesú. Jesús horfði á hann og sagði: ,,Þú ert Símon Jóhannesson, þú skalt heita Kefas`` (Pétur, það þýðir klettur).

43 Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann: ,,Fylg þú mér!``

44 Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur.

45 Filippus fann Natanael og sagði við hann: ,,Vér höfum fundið þann, sem Móse skrifar um í lögmálinu og spámennirnir, Jesú frá Nasaret, son Jósefs.``

46 Natanael sagði: ,,Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?`` Filippus svaraði: ,,Kom þú og sjá.``

47 Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann: ,,Hér er sannur Ísraelíti, sem engin svik eru í.``

48 Natanael spyr: ,,Hvaðan þekkir þú mig?`` Jesús svarar: ,,Ég sá þig undir fíkjutrénu, áður en Filippus kallaði á þig.``

49 Þá segir Natanael: ,,Rabbí, þú ert sonur Guðs, þú ert konungur Ísraels.``

50 Jesús spyr hann: ,,Trúir þú, af því að ég sagði við þig: ,Ég sá þig undir fíkjutrénu`? Þú munt sjá það, sem þessu er meira.``Og hann segir við hann: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.``

51 Og hann segir við hann: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.``
Jóhannesarguðspjall 1:36 - John Calls Jesus the Lamb of God
John Calls Jesus the Lamb of God

<< Prev Top Next → >>